Það er komin fram hugmynd um að setja saman hérna yfirlit yfir alla bardagalistaklúbba og félög sem eru starfandi hér á landi. Þetta gæti þjónað sem eins konar FAQ skrá um bardagalistasamfélagið á landinu í heild. Ég er til í að taka að mér að setja þetta saman ef að þið eruð til í að senda mér póst með upplýsingum um þá klúbba sem þið æfið hjá og hvað er kennt þar. Ég gæti látið vita í Tilkynningakubbnum hvað er komið og hvað ekki svo að ég fái ekki tuttugu sinnum sömu upplýsingarnar :-)


Það sem þyrfti að vera í svona skrá er eftirfarandi:

Nafn félags/klúbbs
Heimilisfang dojo/æfingaaðstöðu
Nafn og gráða yfirþjálfara (eins eða fleiri)
Hvaða stíll/stílar eru kenndir hjá félaginu
Símanúmer, heimasíða og póstfang félagsins.

Takið nú saman þesar upplýsingar (+ það sem ykkur finnst að ætti að vera í svona skrá) um félagið ykkar og sendið mér hið snarasta
póstfangið er <obsidian@hugi.is>

P.S. EKKI senda þetta sem viðhengi, bara í bréfstextanum sjálfum takk.

obsidian
Aikikai Reykjavík