Björn og Rut taekwondofólk ársins Grein fengin frá Taekwondo.is .
_______________________________________

Björn og Rut taekwondofólk ársins

Björn Þorleifsson úr Björkum og Rut Sigurðardóttir úr Þór á Akureyri hafa verið valin taekwondofólk ársins 2004 af Taekwondosambandi Íslands. Björn og Rut eru valin vegna góðrar frammistöðu þeirra á árinu sem er að líða. Þau urðu bæði tvö Norðurlandameistarar 2004 í Vierumaki í Finnlandi 24. janúar, eru stigahæst á styrkleikalista TKÍ, Björn í fyrsta og Rut í öðru sæti, ásamt fleiri titlum.

Ég vil óska þeim til hamingju með verskuldaðan titil.

Texti: Erlingur Jónsson