Taekwondo-garður í Muju-héraði Frétt fengin af Taekwondo.is heimasíðunni.
__________________________________________
Bandarískt fyrirtæki heitir 500.000.000 dollurum til fjármögnunar Taekwondo-garðs í Muju

Bandaríska fyrirtækið Winwheel Bullion hefur ákveðið að leggja 500 milljónir dollara til fjármögnunar á byggingu Taekwondo-garðs í Muju-héraði í S-Kóreu. Innifalið í þessu verkefni eru m.a. bygging aðalstöðva WTF, aðrar byggingar tengdar Taekwondo, hótel,
verslunarmiðstöð, íbúðasvæði, skóli, spítal og almenningsgarðar.
Í Muju hafa menn reynt að koma þessu verkefni í gegn síðan árið 1997 en fjármögnun hefur reynst erfið. Muju sækist einnig eftir að halda vetrarólympíuleikana 2014.
Það eru í raun 17 borgir og héruð í Kóreu sem sækjast eftir að fá þetta verkefni til sín og stjórnvöld munu taka lokaákvörðun um það hvaða staður verður fyrir valinu fyrir árslok. Fjármögnun Bandaríkjamannanna hefur aukið möguleika Muju á að verða fyrir valinu til muna.

Myndin hér að ofan er af hofi í Muju héraðinu.

Frétt frá: Korea Times
Þýðing: Jóel Kristinn Jóelsson
___________________________________

Frétt fengin af Taekwondo.is heimasíðunni.