Ég vil hvetja áhugafólk um bardagaíþróttir að mæta í Valsheimilið nk. laugardag og sýna það í verki að við kunnum að META framtaks-semi
þeirra sem að mótinu standa og við sýnum það með því að mæta!!!
Ég hef ekki hundsvit sjálfur á bardagaíþróttum, öðrum en boxi en ég ætla að koma fyrir þær sakir einar að hafa gaman af þessu og styðja menn sem eru að reyna að ryðja og vinna heilli íþróttagrein brautargengi.

Miðaverðið er í lægri kantinum, svo það ætti ekki að standa NEINUM fyrir þrifum, SJÁUMST laugardag.