Jæja þá er þetta búið :) þetta var bara hörkugaman. Mættum þarna 6.

Vorum um 10 mín of seinir við Kahn, qeySuS of Thaiboxer, rétt náðum að koma áður en Punisher lét sig hverfa :) (hann hélt að enginn væri að koma). Þetta reddaðist allt og við fórum inn, byrjuðum á smá groundfighting til að hita upp. Byrjað á hnjánum bara og svo reynt að ná hinum í lás. Því næst fórum við í nokkur basic takedown og fleira. Æfingin var frekar lauslega samansett, enda fór fyrsti tíminn svoldið mikið í að spjalla bara saman og kynnast aðeins betur, þekktust ekki allir og því fínasta mál að taka því bara rólega fyrst og kynnast aðeins. Síðan var farið aðeins í standup fyrir þá sem höfðu áhuga, ekkert hart bara létt verið að fara og æfa tæknina aðeins, okkur vantaði alla púða til að taka eitthvað almennilegt af striking :)

Annars var þetta mjög gaman, vorum eins og ég sagði 6 þarna, ég, Kahn, Punisher, Thaiboxer og svo 2 sem eru ekki á Huga (að ég held allavega) gaman af því bara.

Stefnan er sett á aðra æfingu í náinni framtíð, mætum þá með einhverja focus pads og fleira og getum æft meira striking ef við viljum. Vonandi að fleiri mæti næst, verst hvað við gátum kynnt þetta seint, var ekki komið á hreint fyrr en frekar seint á föstudeginum :/ En svona er þetta, verða bara fleiri næst.