Ég rakst á auglýsingu frá Heilsudrekanum, Ármúla, um daginn og sá þar auglýst að prófessor í “wu shu art” væri þar að kenna, og fékk mikinn áhuga á því. Wu shu er forveri hins vel þekkta kung fu, og er listrænna og er taktur mikið notaður við æfingarnar.Ray Park, sá sem lék Darth Maul í SW Ep.1 The Phantom Menace. Wu shu er mjög vinsælt í Ameríku og Evrópu hjá þeim sem eru mjög hugfangnir af því að læra bardaga sem listform.
Ég var að velta því fyrir mér hvort einhverjir hér vissu eitthvað meira um þetta og hvort það sé hægt að læra þetta á Íslandi, fyrir utan í Heilsudrekanum. Og einnig hvernig er hægt að komast í samband við þetta fyrirtæki, Heilsudrekann.

kv.
Estorriyol