Tekin á Olympus u700. Fyrsta alvöru myndin mín á þessarri myndavél, er ennþá að skoða mismunandi fítusa á henni og þess háttar. Tók um 25 mismunandi myndir af þessarri uppstillingu og fannst þessi heppnast best, svona glóandi. Smá crop og fikt í PhotoFiltre. Endilega segja mér hvað má fara betur!
Sendi inn eina mynd áður sem er eins og þessi nema að nafnið er á þessari(ef einhver ætlaði að copya hana). gerði þennann banner/signature fyrir blizzard keppnina á hugi.is/blizzard en því miður var hún of stór(vissi ekkert hvað hún átti að vera stór) og að ég sendi hana inn dáldið seint
Ég var að mála í unglingavinnunni og fékk allt í einu löngun til að klína málningu á höndina á mér og skreyta vinnubuxurnar. Þetta er útkoman. Ég fiktaði í litunum, klippti myndina aðeins til og setti ramma utan um. Ég vona að það sé í lagi.
Myndin var tekin heima hjá mér, 15. júní 2006 á ósköp einfalda Kodak Easyshare myndavél.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..