Jæja nú er sögukubburinn kominn í gagnið.
Sögukubburinn er aðeins öðruvísi en aðrir kubbar.
Það getur ekki hvaða hugari sem er komið hingað inn og skrifað í sögukubbinn. Það er vegna þess að við viljum að fólk vandi sögurnar og segi skemmtilega frá. Greinin um Stockport frá xaron fyrir nokkrum vikum var gott dæmi um skemmtilega frásögn.
Þannig sögur við viljum við fá hérna. Það er söguhorn á sigames þar sem þið getið sótt góðar hugmyndir um hvernig er gaman að segja frá.

Eftir að menn hafa sent inn grein hér getur sá aðili alltaf komið aftur og breytt greininni.
Það er til dæmis sniðugt að spila 1 tímabil, koma síðan hingað og skrifa um það og síðan spila næsta tímabil og koma aftur hingað og bæta við o.s.fr.

Þeir sem vilja fá aðgang að sögukubbnum verða að senda mér skilboð eða tölvupóst.

Þeir sem eru með aðgang núna eru mac2, slay, pires, wbdaz og xaron.

Endilega reynið fyrir ykkur sem sögugerðarmenn því það er mjög gaman að lesa skemmtilegar sögur.

Nánar upplýsingar:
mac2
slay