Sæl.

Það hafa einhverjar vangaveltur verið um hvernig þessi leikmannakubbur virkar og ætla ég hér með að binda enda á þær. Ég fæ stundum skilaboð með beiðni um aðgang en krakkar mínir, það er bara ekki nóg - kerfið virkar ekki þannig.

Sendið skilaboð til mín eða bludgeon þar sem þið lýsið yfir áhuga ykkar á að fá aðgang og sendið svo eina leikmannagrein með sem þið hafið áhuga á að fá að birta þar. Ef greinin stenst okkar almennu kröfur þá fáið þið aðgang og getið sent þessa grein inn á kubbinn plús milljón aðrar í framtíðinni. Ef greinin stenst ekki okkar kröfur þá látum við ykkur vita og þið fáið tækifæri til að lagfæra hana og prófa aftur, ef áhugi er fyrir hendi.

Ef einhver vafi leikur á um hvernig þessar almennu kröfur eru þá bendi ég bara á leikmannakubbinn sjálfan, skoðið greinarnar þar og þá sjáiði svona nokkurn veginn hverju við erum að biðlast eftir.

Munið líka eitt, þó þið séuð komin með aðgang þá þýðir það ekki að við getum ekki tekið hann af ykkur aftur. Vandið ykkur, fyrir alla muni. :)

Gangi ykkur vel!