Sæl.

Er búin að vera í því í kvöld að laga og sortera tenglana hérna á áhugamálinu, hafði ekki verið gert lengi. Nú eru allir tenglar virkir og allir benda þeir á síður sem eitthvað vit er í. Svo ég hvet ykkur eindregið til þess að nýta ykkur þessa tengla með hvað sem er, það er ýmislegt sniðugt á öllum þessum FM/CM síðum, eins og skins, leikkerfi, æfingakerfi, leikmannalistar o.s.frv.

Ég vil einnig hvetja ykkur til þess að senda inn fleiri tengla ef þið lumið á einhverjum góðum og ég biðla til ykkar um að láta mig vita ef það er eitthvað sem betur mætti fara (einhverjir tenglar óvirkir o.s.frv.).


Njótið vel!