Sælir lesendur /cm,

Þið veltið því e.t.v fyrir ykkur núna hví könnunin hafi horfið af áhugamálinu. Þetta er liður í endurbótum á áhugamálinu sem að eru í ljósi þess að stokkað hefur verið upp í stjórnendahópnum og ferskt blóð hefur tekið við stjórnunartaumunum.

Við stjórnendurnir höfum ákveðið að reyna að hressa allrækilega upp á þetta en til þess þurfum við ykkar hjálp þið verðið að vera dugleg að senda inn greinar, myndir og tengla.

Bludgeon hefur tekið við draumaliðinu og héðan í frá skulu draumalið sendast til hans.

Ákveðið hefur verið að hressa upp á leikmannakubbinn og ef þið viljið að ykkar leikmannagrein birtist þar sendið þá greinina til cablegram.

Svo er sögukeppnin að komast á fullt skrið undir stjórn Jessalyn.


Kv. Jessalyn, Cablegram og Bludgeon.