Áhugamálið hækkar sig um heil þrjú sæti og er nú það 9. vinsælasta.

Ég verð að viðurkenna að ég bjóst svo sem ekki við áhugamálinu þetta háu í mars þar sem að ekki margar greinar hafa komið. En ég segi enn og aftur að korkarnir hér eru einhverjir þeir virkustu á Huga.

Það komu inn tvær leikmannagreinar. Ég vil minna notendur á að á leikmannakubbinn eiga að koma ítarlegar leikmannagreinar en svo er auðvitað hægt að nota korkinn í smáar leikmannagreinar.