17. sætið í október. Í rauninni það 13. því við teljum ekki forsíðu, static, egó og kasmír sem áhugamál.

Það er mjög jákvætt að sjá allar þessar greinar og hafa þær farið batnandi síðustu mánuði. Í október voru sendar inn 17 greinar.

Leikmannakubburinn var opnaður og nú þegar hafa komið inn 12 leikmannaumfjallanir (10 í okt.). Ég vil þó beina þeim tilmælum til þeirra sem hafa aðgang að kubbinum að það er ekki magnið heldur gæðin sem telja ;)

Nýjasti leikurinn er svo væntanlegur 21. nóvember þannig að það eru bjartir tímar framundan.