Þessi angólski ungliði er einn af þeim efnilegri í CM 01/02. Hann er fæddur þann 18. mars 1982 og byrjar því 19 ára í leiknum. Gaurinn er samkvæmt áraðanlegum heimildum 77kg og 179cm, ekki að það komi eitthvað leiknum við en engu að síður er þetta umfjöllun um leikmanninn. Hann er er framherji eða “Striker” eins og það útlegst á ensku.
Fyrsti landsleikurinn hans var í janúar 2001. Tímabilið 2000-2001 lék hann með Alverca í Portúgal og skoraði þar 9 mörk í 26 leikjum. Eftir það tímabil var hann keyptur til Benfica. Því getur það reynst þrautinni þyngri að klófesta hann vegna þess að Benfica segist ekki vera tilbúið að selja hann strax þar sem hann sé nýkominn til félagsins.
Á fyrsta tímbili er hann ágætur og tekur miklum framförum í tölum. Á öðru tímabili er hann orðinn að áhugaverðri fjárfestingu fyrir flest stóru liðin og á þriðja tímabili er eins gott að vera búinn að kaupa hann áður en einhver annar gerir það.
En niðurstaðan er 5/5.

Ps. ég hafði eiginlega ekki tíma til að leyta að mynd þar sem ég er í vinnunni.