Unglingur  vikunnar 24.12 - 28.12 ´01 Eftir að hafa fegnið margar ábendingar um leikmenn sá ég fram á að ég gæti ekki bara skrifað um einn leikmann í hverri viku og því ákvað ég að gera þetta svona, hafa ungling vikunnar og leikmann vikunnar. Unglingarnir munu líklega vera u.þ.b. 16-20 ára og leikmenn vikunnar vera þá að sjálfsögðu 20 ára og eldri.

En nóg af þessu. Fyrsti unglingur vikunnar að þessu sinni er 19 ára gamall og spilar vinstra megin á vellinum, er Defender/Attacking midfielder left. Hann kemur frá Argentínu og gegnur undir nafninu Julio Arca. Ég er núna að stjórna liði Sunderland og hef hann þar á vinstri kanti í 2-1-4-1-2 leikkerfinu og er hann bókstaflega að blómstra þar, skorar og leggur upp mörk reglulega.

Hann er einnig feykilega efnilegur í alvörunni og stendur sig frábærlega með Sunderland. Ég veit ekki hvað hann kostar enda var hann hjá Sunderland þegar ég tók við liðinu. En þið megið búast við því að hann kosti slatta :)

****/*****
Anyway the wind blows…