Ég býst við að flestir ykkar þekki þennan. En ég ætla engu að síður að skrifa grein um ágæti þessa frábæra framherja.

Hann byrjar hjá IFK Göteborg. Maður getur yfirleitt fengið hann á u.þ.b. £1m snemma í nýjum leik, en það tekur því varla vegna þess að samningur hans við Göteborg rennur út 1.12.02. Þá er hann enn það ungur (ný orðinn 21.) að það er allveg þess virði að spara sér milljónina og fá hann frekar frítt um mitt annað tímabil. Ég hef hann yfirleitt í varaliðinu út 2. tímabilið en set hann svo í byrjunarliðið á þriðja. Þá er hann orðinn markamaskína #1 og setur að meðaltali mark í leik og er með 8+ í einkunn.

Hann er ótrúlega hraður leikmaður með 20 í bæði pace og acceleration og er með háar tölur í dribbling, finishing og technique. Hann er einnig með hátt determitaion en það er nánast nauðsynlegt hjá unglingum, sem og öðrum leikmönnum. Fyrir ykkur sem ekki skilja þetta orð þá þýðir það einurð eða ákveðni, t.d. til að verða besti leikmaður í liðinu þínu eða jafnvel leiknum ef því er að skipta. Og þessi leikmaður hefur sko heldur betur hæfileikann og ákveðnina til þess.
Þetta er sóknarmaður að mínu skapi skal ég segja ykkur.