Nafn: Marcelo Gallardo
Fæðingardagur: 18.01.1976
Staða: Framsækinn miðjumaður
Félag: River Plate, Argentínu
Þjóðerni: Argentína
Hugsanlegt verð: Metinn á um 4-5 milljónir punda í upphafi leik, rausnarlegt tilboð gæti verið um 8 milljónir punda.

Marcelo er þessi týpa af leikmanni sem getur sigrað leiki uppá eigin spítur með hvaða einasta liði. Hann er með bæði frábærar tölur í hugarfari og tækni/leikni. Á sínu 28. aldursári er hann nálægt því að vera á toppnum á ferlinum en þó, hann getur bætt sig.

Helstu eiginleikar:

Marcelo er með frábærar aukaspyrnur, hornspyrnur og gífurlega leikni. Hann er jafnframt fyrirmyndar fyrirliði og spilar með liðinu. Síðast en ekki síst er hann hraður, duglegur og reyndur. Þetta er hinsvegar einungis bara brot af því besta og hvet ykkur til að kíkja á kappann.

Helstu gallar:

Eins og ég sagði áður þá er hann á sínu 28. aldursári, s.s. nokkuð gamall en jafnframt reyndur en á samt bara 3-4 tímabil eftir meðal þeirra bestu, allavega. Slakur skallamaður, lítil dirfska og máttlaus eru hans aðalveikleikar. Einnig gæti verið að hann sé nokkuð dýr fyrir sum lið.

Svipaður leikmaður:
Paolo Aimar

Mæli virkilega með kappanum, gríðarlega góður leikmaður sem býr yfir margfalt fleiri kostum en göllum, getur átt tímabil með 8-9 í meðaleinkunn.

Einkunn á skalanum 1-10: 9.5