Mimoun Azaouagh Nafn: Mimoun Azaouagh
Fæðingardagur: 17.11.1982
Staða: Hægri kantmaður

Mimoun er í raun falinn fjarsjóður. Mimoun, sem er Þýskur en á ættir að rekja í Marokkó byrjar í Schalke 04 og er hann einn af þeim leikmönnum sem eru mitt á milli virkilega góðs leikmanns og heimsklassa leikmanns. En eftir 1-2 tímabil verður hann topp leikmaður. Einnig er hann einungis um tvítugs aldur í upphafi leiks.

Helstu eiginleikar:

Hann hefur alla þá burði sem kantmaður þarf og meira en það. Nokkuð fljótur, snillingur með boltann, góðar fyrirgjafir, sendingar, tækni og allt það. Einnig er hægt að fá hann fyrir vasapeninga eða rúm 500 þúsund pund.

Helstu gallar:

Hann er nokkuð fit gaur, en mætti þó vera sterkari. En það sakar ekki og fleiri galla hefur hann varla nema kannski að hann er ekki sterkur i loftinu.

Einkunn frá 1-10: 9.75