Lebohang Mokoena Nafn: Lebohang Mokoena
Fæddur:29.09.86
Staða: FC (Spilar bæði sem miðju- og sóknarmaður)
Land: Suður Afríka
Verð: Oftast um 325k

Lebohang Mokoena er frábær leikmaður. Hann er aðeins 18 ára í byrjun leiks en þrátt fyrir það er hann búinn að spila nokkra landsleiki fyrir S-Afríku. Í leiknum er hans description “midfielder” en sjálfur nota ég hann mest sem senter og hann hefur farið á kostum á 2.tímbili mínu í Premier League og skorað 22 mörk í jafn mörgum leikjum.

Helstu eiginleikar: Hann er með 20 í finishing, mjög sterkur skallamaður, fljótur, mikinn stökkkraft og líka góð vítaskytta. Þá er hann með hátt í determination og concentration. Hann er í raun stórkostlegur og án efa einn besti leikmaður sem ég hef fundið í leiknum.

Helstu gallar: Hann er frekar skapbráður og síðan er erfitt að fá leikheimild fyrir hann. En það er alltaf hægt að gera eins og ég og láta hann fá 2nd nationality, kannski smá svindl en þetta work permit dæmi er stundum rugl pirrandi.

Einkunn frá 1-10: 9