Magne Hoseth Ég ætlar hér að skrifa smá grein um Magne nokkurn Hoseth en hér koma smá upplýsingar um hann:

Fæddur: 13-10-1980
Staða í leiknum: AMC/MC - Left/Center
Lið: Molde
Hæð: 184 CM
Þyngd: 80 Kg
Númer: 10
Land: Noregur
A Landsliðsleikir: 1
U21 og U23 landsleikir: 5

Mín reynsla af Magne Hoseth í leiknum er bara mjög góð. Vinur minn benti mér fyrst á þennan mann svo ég prófaði að kaupa hann og kom það mér á óvart hvað hann stóð sig vel. Að mínu mati er best að nota hann með liði í 1. deild eða með einhverju slöku liði í úrvalsdeild.

Þegar þú ert búinn að nota Hoseth í svona 3-4 season byrjar hann að brillera og flest stórlið í Evrópu vilja hann. Þessar upplýsingar um hann sem eru hér fyrir ofan fann ég á einni síðu á netinu og greinilegt er að hann er ekkert slakari í raunveruleikanum heldur en í leiknum því þetta stóð um hann þar:

"One of the biggest talents in Norway at the moment. Has technical skills many can just dream of, and passes and creativity who is just incredible”.

Það er greinilegt að þessi drengur er snillingur.

Endilega prófið að kaupa þennan mann einhverntíma en þið getur fengið hann á svona bilinu 1-2 milljónir og það borgar sig svo sannarlega að eyða þessu í hann :)

ATH! ég er í CM 01/02.
ViktorXZ