Þetta er frábær leikmaður sem spilar framarlega á miðjunni, hvort sem það er á hægri kant,vinstri eða á miðri miðjunni. Hann er 22 ára gamall þegar þú byrjar leikinn og er hjá 3.deildarliðinu Hull í ensku deildinni. Þessi drengur alveg frábær og er mjög duglegur og einnig mjög markheppinn. Ég er Stockport County í 1.deildinni og þar er hann að fara á kostum, með 8.22 í average rating og búinn að skora slatta. Mér finnst hann virka best á miðri miðjunni en er líka ansi góður úti á hægri kantinum. Virkar fyrir mér svona eins og Paul Scholes gaur.