Mitt besta tímabil í FM Er taplaus í 48 leikjum í röð í deild, næ vonandi að komast yfir 50. Báðir jafnteflisleikirnir komu gegn Sevilla, hata þetta lið núna. Leikirnir fóru 2 - 2 og 1 - 1 gegn þeim. Casillas fékk aðeins á sig 8 mörk í deild, hin 3 fengu Fernando Asenjo (regen) ungur gk og Almunia sem er backup markmaðurinn minn.

Þrátt fyrir magnaðan árangur í deild þá datt ég út vs Barca í CL á sorglegan hátt. Gerði dramatískt 1 - 1 jafntefli við þá úti, tapaði svo heimaleiknum 3 - 4 þar sem ég leiddi 3 - 2 í hálfleik, komst í 3 - 1 en fékk einhverneginn 3 ljót mörk á mig í röð. Í fyrsta og eina sinn á tímabilinu spiluðu allir varnarmennirnir + markmaðurinn illa.