Cameron Bower Þetta kvikindi kom uppúr unglingastarfinu í Liverpool.
Tók eftir að hann Pako minn sagði að hann lofaði góðu svo ég hafði hann í huga.

Svo skellur á úrslita leikur í League Cup og Torres meiðir sig og eini framherjinn minn er Fowler. Ég fer beint að skoða u18 og rek mig í Bower og fannst ég endilega kannast við hann og setti hann í aðalliðið.
Hann setti 2 mörk í 3-0 sigri á Tottenham.

Næst gerist allveg það sama í FA Cup Finals og Bower beint uppí aðalliðið og Setur eitt mark á 93 minutu sem ég vann 2-1 á móti Rassenal.

Næsti leikur er Barcelona í ECC og Torres ennþá meiddur. Bower kláraði Barcelona með 2 mörkum og einni stoðsendingu!

3 leikir á tímabilinu og allir úrslitaleikir og hann setur 5 mörk, ekki slæmt fyrir nýliða :P