Sælir alle sammen

Búinn að vera í sumarfríi og þess háttar en er kominn aftur af fullum krafti að safna saman íslensku liðunum.

Næsta deadline er 22. september og þá verð ég að senda inn gagnagrunninn. Það sem ég er kominn með er nóg til að fá ágæta deild en ég vil ekki að hún sé bara ágæt. Ég vil að hún sé flott og rétt og þess vegna þurfa allir, og þá meina ég ALLIR að vera með, þó það séu bara upplýsingar um einn leikmann, þá er það fínt.

Þið sem hafið áður skráð ykkur hjá mér, það væri gott að fá staðfestingu á að þið væruð ennþá með og allir hinir sem hafa áhuga á að koma sínu liði að, verið velkomnir.

Ég vil líka taka fram að ég er harður Skagamaður og ég hata KR! Þannig að ég hvet KR-inga og aðra til að senda inn upplýsingar, annars fæ ég alveg að ráða hverjir geta hvað og þið viljið það örugglega ekki, hehe.

E-mailið er sem fyrr snabbi@isholf.is og ég heiti sem fyrr Snæbjörn Sigurðarson og er staðsettur á Djúpavogi.

Fyrir þá sem ekki voru búnir að sjá, kíkið á:

http://www.sigames.com/resanddev_researchers.php

Comment, spurningar, athugasemdir og kvartanir eru einnig velkomnar.

Kveðja
Snæbjörn Sigurðarson(GettuHver)
SI-games