Ég hef spilað managerinn í möööörg ár, (í raun alltof mörg) og ég hef komist að því að einn ákveðinn leikmaður virðist ávalt skara framúr í sinni stöðu. Fyrst rakst ég á umræddan leikmann í CM2 ef ég man rétt en þá var hann aðeins 14 ára, enn og aftur ef ég man rétt.
Téður leikmaður heitir Tonton Moukoko (allavegana er tonton rétt skrifað) hann er með millinafnið Zola og er frá Svíþjóð og Ghana. Hann er AM/F C og er vægast sagt BRILL! Tölurnar eru ekkert sérstakar en hann er þó búinn að sparka Pablo Aimar út úr liðinu mínu og er aðeins 22 ára! Hann er í Derby í upphafi leiks.
Ég vildi bara deila þessu þar sem ég hef ekki séð neinn minnast á hann.
Svo er Neri Alberto Castillo, AM L líka góður en maður þarf að hafa traustann varamann fyrir hann þar sem hann er nokkuð gjarn á að meiðast. Einnig er Allan Scott fínn í markinu ásamt Justin Georcelin í sókninni.
Skynsemi er fyrir þá heimsku.