AF hverju þurfa alltaf sömu einstaklingarnir að hrauna yfir menn sem koma með einhverjar sögur, tillögur eða vilja skrifa á korkanna.

Ég er orðin mjög leiður og pirraður yfir þessu.

Það er enginn furða að það nennir enginn að skrifa á þetta áhugamál því að sumir hrauna yfir þann sem gerir það. Þið verið bara líka að skilja að það er ekki allir búnir að spila þennan leik lengi og það eru alltaf einhverjir nýjir að fatta þennan leik og alltaf nýjir notendur á huga.

Ég vil bara segja það að þótt einhver skrifi að Djibril Cissé sé góður leikmaður eða einhver annar og þið vitið að hann sé góður þá þarf ekki að böggast yfir því. Ef þið getið ekki svarað að þið séuð sammála því eða mælt með öðrum leikmanni við þann aðila, sleppiði því að svara.

Ég held að flestir séu sammála mér í þessu. Og ef einhver ætlar að koma með eitthvað skítkast útaf þessu bréfi þá STFU, ég vil ekki heyra það.

kveðja BIZKIT