Jæja þegar ég frétti að það ætti að vera hægt að gera eitthvað lið að “félögum” þínum í CM4 þá ákvað ég að prófa þetta.

Ég tók við Liverpool “again” og líka PSV. Ég ákvað að kaupa alla ungu gaurana sem ég fýla í cm og gaura sem ég get ekki komið fyrir í liðinu hjá Liverpool og ala þá upp hjá PSV. Ég ætla mér ekki að svindla og taka síðan gaurana frítt til mín eða neitt þannig, ég mun kaupa þá á sanngjörnu verði. Það sem kom mér líka á óvart hversu fljótt PSV urðu góðir og eru reyndar að standa sig betur en vinir þeirra í Liverpool. Þetta er með skemmtilegari saveum sem ég hef spilað. Ég mæli með því að þið prófið þetta líka og gaman væri að fá smá comment frá þeim sem hafa gert þetta nú þegar.