Edalgunnipalli stakk upp á því að bæta við kubbi þar sem notendur /manager gætu sent inn taktíkina sem þeir eru að spila og deila henni með öðrum notendum.
Ég lagði hausinn í bleyti og datt svosem engin frábær leið til að gera þetta, þannig ég endaði á því að bæta við nýjum tenglaflokk, sem heitir CM/FM tactics og þangað getið þið sent inn link á taktíkina sem þið eruð að spila.
Getið auðvitað lýst taktíkinni í stuttu máli á tenglakubbnum, og síðan getiði náttúrulega sett inn þráð þar sem þið linkið á taktíkina.

Ég mæli með http://fmfile.com/ til að uploada tactics og öðru slíku.

Bætt við 23. júní 2011 - 09:18
Virðist vera e-ð vesen með að linka yfir á tactic fæla á fmfile.

Reyni að finna útúr þessu þegar ég kemst á netið aðeins lengur, sem verður líklegast bara e-n tíman í kvöld.