Hefur einhver annar hérna reynslu af þessum kappa !?

Ég var að kaupa þennan ótrulega leikmann til Arsenal á þriðja tímabili á 39 milljónir punda, ég er að spila með einn frammi og van Persie hafði skilað því ágætlega en vantaði þó eitthvað upp á að mínu mati svo ég ákvað að kaupa Aguero. Persie hafi spilað þessa stöðu sem complete forward svo í fyrsta leiknum hans Aguero prófa ég það og varð fyrir miklum vonbrigðum. Hann gerði ekkert í leiknum sem að við unnum þó og fékk 5,5 í einkunn. Ég ákvað því að breyta honum í Poacher og viti menn hann skoraði 5 mörk í næsta leik ! Nú er hann búinn að spila 25 byrjunnarliðs leiki og koma 2 inn á af bekknum og skora 36 mörk ! Þessi maður er ótrulegur og ég mæli hiklaust með því að kaupa þennan mann og stilla hann sem Poacher. Hann er einn frammi hjá mér, svo ég veit ekki hvernig þetta er þegar það eru 2 framherjar en ég vildi bara deila þessu með ykkur.