Rakst á þessa mynd á sænsku FM spjallborði.
http://www.ladda-upp.com/bilder-a/trelleholla-872.jpg

175 leikir án taps! Nú veit ég náttúrulega ekki hvort viðkomandi sé að svindla eða ekki. En þetta er náttúrulega bara rugl að ná þessu ef það er ekkert svindl í gangi.

Hvað er það lengsta sem þið hafið farið án taps, já og með hvaða liði.

Nú verð ég bara að viðurkenna það að ég man ekki eftir neinu svona sjúku streaki hjá mér. Ég átti reyndar síðasta fjórðunginn á einu tímabili og síðan svona helminginn af næsta án þess að tapa leik með Liverpool en það var í gömlu save-i sem ég er búinn að yfirgefa og get því ekki alveg sagt hve langt streakið var nákvæmlega. En það var ekkert svona ótrúlegt þannig séð.