Svona fyrst það er ekkert að gerast hérna, segið frá seivinu ykkar sem þið eruð í núna.

Hvaða lið eruði, hverjir eru að slá í gegn hjá ykkur og svona það helsta. Megið jafnvel henda screen shots inn ef þið hafið einhverja flotta regena.

Ég er Liverpool á 3. seasoni, er að kaupa Hulk. Torres brilleraði hjá mér á seinasta tímabili með 34 mörk í 36 deildarleikjum. Vann deildina á 2. tímabili eftir að hafa lent í 2. sæti á 1. tímabili. Held að Hulk muni koma til með að styrkja mig í CL og öðrum keppnum þar sem ég hef ekki verið uppá mitt besta.