Fletcher og Van Der Sar fóru í fýlu á fyrsta tímabili útaf því að þeim fannst ég ekki halda nógu góðum aga innan liðsins.

Núna er ég að verða hálfnaður með annað tímabil og ég get ekki fengið þá til þess að hætta að vera óánægðir.

Samningurinn hjá Fletcher er að renna út eftir 6 mán. og hann vill ekki semja, þó ég bjóði honum mjög góðan samning.

Þegar ég fer í private chat þá koma bara upp möguleikar sem bjóða uppá það að rifrildið haldi áfram, það virðist ekki vera neinn annar möguleiki stöðunni en að reyna að selja hann í janúar.

Þetta er ótrúlega svekkjandi því hann er lykilmaður í liðinu!

Það hlýtur að vera einhvað sem maður getur gert! Eftir þetta atvik er ég búinn að prófa að refsa mönnum fyrir rauð spjöld en það virðist ekkert hafa áhrif á Fletcher.

Einhverjar lausnir í boði?
_________________________