Þið hafiði kannski tekið eftir því að ég hef ekki verið að gera mikla hluti hérna uppá síðkastið.

Mig langar bara að láta ykkur vita að ég er að spá í að draga mig í hlé sem admin hér á cm í nánustu framtíð. Það verður þá væntanlega til lengri tíma.

Ástæðurnar fyrir þessu eru að ég hef ekki jafn gaman af þessu og ég hafði hérna fyrst og fyrst maður hefur ekki gaman af þessu er þetta algerlega tilgangslaust. Ég tel mig vera búinn að gera góða hluti fyrir þetta áhugamál en ég held að nú ætti að leyfa öðrum að halda þeirri þróun áfram.

Ef ég myndi hætta þá myndi ég að sjálfsögðu halda áfram að taka þátt í umræðum o.fl hérna. Þó gæti ég hugsað mér að halda admin réttinum og geta gripið inní t.d ef það þarf að kóða html á kubbunum.

Þá eru eftirstandandi 2 adminar þeir Hvati og wbdaz. Þeir eiga allveg að ráða við þetta en ef að ég myndi hætta og 3. admin koma inn, þá finnst mér bara 1 maður koma til greina.
Sá maður er pires.

Ég er samt ekki búinn að ákveða að hætta.
Mig langaði bara að láta ykkur vita af þessum hugleiðingum svo þetta kæmi ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti.

mac2

P.S
Ég er líka hættur að reyna að vinna að þessu cm íslenska update-i og ég geri það <b>ekki</b> aftur.
cmwebmaster@simnet.is er með það mál.