Já ég keypti mér FM 09 strax og hann kom út. Ég byrjaði að spila strax en fannst hann ekki vera að gera sig mikið. Ég var þá einmitt kominn með smá “FM leiða” eins og ég fæ stundum, og hafði ekkert farið í 08 í nokkrar vikur.

Svo hef ég ekkert verið í FM frá því í byrjun desember vegna anna í skóla, en er kominn í gott frí núna og vil endilega reyna að festast í honum.

Mér fannst svo gott í 08 af því að þá hafði ég fundið svo marga góða óþekkta leikmenn sem ég keypti alltaf/oftast, en þarf náttúrulega að byrja á byrjun í því í 09, og ólíkt sumum finnst mér það ekkert sérstakt.

Svo ég spyr ykkur..
- Hvaða lið er gott að byrja með til þess að fá fiðringinn aftur?
- Vitiði um marga svona góða “óþekkta” leikmenn (eins og aaritalo og fleiri í 08)
- Mæliði með að spila með upprunalega leikinn, 0,1 eða 0,2 update?

Svo ef einhver er með einhver tips eða eitthvað til þess að hjálpa mér að komast af stað, þá er það allt mjög vel þegið :)