Sæl,

Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhver væri svo klár að kunna að búa til keppnir sem hægt er svo að taka þátt í í leiknum sjálfum.

Ég fékk þá snilldahugmynd að búa til útsláttarkeppni þar sem kannski 256 lið hvaðan að úr heiminum myndu taka þátt. Þetta gæti verið eins konar önnur heimsmeistarakeppni félagsliða.

Ég er búinn að fara í gegnum allt í editornum þetta er ekki hægt þar. Það á samt að vera hægt að breyta einhverjum data file-um og einhvað.

Ef einhver sem hefur þekkinguna vildi vera svo vænn að tékka á þessu fyrir mig þá væri það frábært.
_________________________