Ég var að vonast til að jólin væru að eilífu en svo er víst ekki.
Þegar að jólin eru búinn þá þarf að taka niður jólaskreytingarnar henda jólatréinu og BREYTA jóla litnum á CM áhugamálunu hérna á Huga :(
Er ekki kominn tími til að breyta þessu?
Þar sem að það virtist enginn koma með neina uppástungu um þetta síðast þegar þetta kom til umræðu ætla ég hér með að koma með tillögu um að litunum verði breytt úr gulu og gráu yfir í CM 01/02 “offical” litina þ.e. Svart og Rautt.
Hvernig litist ykkur á það?
Annars er mér sama hvernig sem þetta er svo lengi sem að þessu er breytt, þetta má vera bleik fyrir mér en það verður einhver að taka af skarið ;)