Ég hef svona verið að velta þessu fyrir mér allir þessir leikmenn sem koma inn í leikinn og langflestu bestu ungu leikmennirnir í byrjun ná aldrei jafn góðum tölum og leikmenn sem eru bestir í byrjun leiks. Er t.d. á 7. seasoni og leikmennirnir sem eru bestir af þessum ungu sem koma í gegnum unglingastarf ná aldrei svona háum tölum eins og leikmenn á borð við Palombo, Iniesta og bara allir þessir gaurar.

Ef einhverjir hafa notað Editor og save game Editor þá ættu þeir að skilja tölurnar Current Ability og Potential Ability. Leikmenn eins og Iniesta verð með þvílíkar tölur eftir 0-2 tímabil
og kanski 180 í current ability svo eru einhverjir gaurar sem koma inn í leikinn og þegar þeir ná 180 í current ability eru þeir samt með helmingi lélegri tölur heldur en leikmenn eins og iniesta.