Ég er mikið að lenda í því að eldri og reyndari leikmenn séu að verða fúlir út í unglingana mína og segjast hreinlega líka illa við þá.
Þetta veldur oft vandræðum hjá mér sem stjórnanda þar sem ég vil helst forðast ósætti í liðinu mínu og stundum þarf ég að selja 28-29 ára gamla leikmenn sem virðast bara hafa allt og alla á hornum sér. Fyrst hélt ég að þetta væri bara þegar ég væri að láta yngri leikmennina “shadowa” eldri leikmenn og persónuleikinn passaði ekki saman, en svo fór ég að sjá að þessir eldri pirruðust út í alla unga og efnilega sem spiluðu sömu stöðu og þeir.

Svo spurningin er, kannast einhver við ástæðuna á bakvið þetta, er þetta einhver hræðsla við að detta út úr liðinu útaf þessum ungu og efnilegu?
Kannast einhver annar við þetta?

Svo má reyndar bæta við að ég lenti nánast aldrei í þessu í byrjun leiksins, en núna er ég kominn alveg á árið 2027 og þá virðast menn vera eitthvað viðkvæmari.