Hvernig er það eigið þið einhvern uppáhalds John Doe leikmann sem er kannski ekkert ofurgóður en þið notið hann samt því þetta er ykkar maður? Minn heitir Alberto Panozzo hann er held 17 ára og kemur frá hinum ógurlega klúbbi á Ítalíu, Vis Pesaro 1898.
Ég keyptann fyrst í 00/01 og hann var geggjaður hjá mér þar, og því fannst mér skilda að kaupann til mín aftur í 01/02, virkar ekki eins vel og í gamla en þetta er minn maður og ég hét mér því að kaupa hann í hverju save sem ég byrja á. Hvað með ykkur??