Það eru rúmlega þrjú ár síðan ég fór að spila Championship Manager. Byrjaði fyrst fyrir alvöru þegar CM 99/00 kom út og þekkir orðið ýmsa leikmenn. Mér finnst frábært að finna óþekkta leikmenn og gera stjörnur úr þeim, t.d. keypti ég oft Javier Saviola og var hann þá 16-17 ára og varð orðin stjarna eftir u.þ.b. þrjú ár. Núna er Saviola stjarna og spilar með Barcelona og eru til fleiri dæmi um þetta. Mér finnst það ansi magnað hvað leikurinn er vel gerður og hvað upplýsingar um leikmenn er góðar. Þetta er náttúrulega ekki alltaf fullkomið, t.d. var Andri Sigþórsson algjör snillingur í CM 99/00 sem hann er nú ekki með fullri virðingu fyrir hæfileikum hans. Þetta er snilldarleikur :)

P.S.
Þetta á náttúrulega bara við þá leikmenn sem eru þegar til þegar maður byrjar leikinn því þegar lengra er komið eru leikmenn bara eitthver random-nöfn.