FootStar er browser based leikur þar sem að þú þjálfar upp þinn eigin leikmann, í staðinn fyrir að stjórna heilu liði eins og í svo mörgum browser based manager leikjum. Þetta er mjög góður leikur sem er bara á uppleið.

Það var verið að setja inn landslið og það væri frábært að fá áhugasama spilara inní þetta litla samfélag sem að Ísland er í þessum leik. Þar sem að það eru einungis 33 íslenskir spilarar ( og ekki nærri því allir af þeim aktívir) þá vantar menn til að fylla uppí landsliðin og til að búa til smá samkeppni um sæti í liðunum. Ef menn hafa spurningar þá endilega koma með þær.

Annars er hægt að finna leikinn á http://www.footstar.org/