Já ég náði í DEMOIÐ af FM 2007 og var þá nokkuð hissa. T.d eru Nani og Andersson í Man Utd báðir metnir á um 20 milljónir punda. Kommon u.þ.b 20 MILLJÓNIR! C.Ronaldo er metinn á eitthvað svipað og Fabregas á eitthvað svipað líka. Nani og Andersson eru kannski efnilegir en þeir eru ekki nálægt því jafn góðir og C.Ronaldo og Fabregas! Fór svo og skoðaði Arsenal og þá eru nánast allir leikmennirnir undir 8 milljónum nema Fabregas. Allir unglingarnir þeirra sem margir telja mjög efnilega voru metnir á eitthvað klink samt búnir að sanna sig miklu meira í deildinni. Ég er nú ekkert að dissa Man Utd en fannst svolítið fyndið að sjá Tevez metinn á miklu meira en aðrir leikmenn sem eru í svipuðum klassa og hann.

Bætt við 18. október 2007 - 19:29
Hahah meinti Fm 2008.