ég er með ungan leikmann frá Suður-Afríku í liðinu mínu sem heitir bennedikt vilakazi. hann er í U-23 landsliðinu í landinu sínu.

ég tók eftir því að ég gat aldrei notað hann vegna þess að hann var að spila með landsliðinu sínu. þá athugaði ég leikina sem liðið mitt átti að spila á leiktíðinni og þar stóð að hann væri á international duty undir hverjum einasta leik sem ég átti að spila á leiktíðinni.

ég athugaði U-23 landslið Suður-Afríku og þar var ekki búið að skipuleggja neina leiki nema fyrir áramót og það var varla búið að spila neina leiki. samt var hann búinn að vera með liðinu sínu allan tímann.

hafiði séð þetta áður?<br><br>——————————

ruglubulli 2001
,,allar alhæfingar eru slæmar"
——————————