Sælir. Notið þennan kork til að deila pirring ykkar úr FM með okkur hinum.


Til að opna þetta þá var ég að keppa við Hull með Lincoln, en ég er buinn að koma þeim upp í Championship deildina og er nýbyrjaður á öðru árinu í þeirri deild. Leikurinn er jafn og staðan er 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik fá þeir fokkin þrjú skítafæri og skora úr þeim öllum, allt ungu Belgi sem þeir eru með á láni. Leikurinn tapaðist 4-2 með tilheyrandi pirring.

Það er líka pirrandi að tveir bestu leikmennirnir mínir sem eru jafnframt báðir framherjar og eru tveir dýrustu leikmennirnir mínir vilja báðir fara frá mér í stærri klúbb og klára báðir samninginn sinn í vor!