Í nýjustu könnuninni hér er spurt hvort manni finnist að það ætti að auka vandamál með leikmenn. Jújú, það má svo sem alveg mín vegna, en það verða að koma einhverjir lausnir á þessum vandamálum. Ef einhver leikmaður lendir í einhverju veseni hjá liðinu þínu, þá er 99,9% líkur á því að hann hætti aldrei í fílu, Personal Problems eru t.a.m. óleysanleg af minni reynslu að dæma. Þau mætti t.d. leysa með möguleikanum á að senda menn til sálfræðings (það er ekki komið inn í nýja er það?). Svo þyrfti maður að geta hrósað leikmönnum á einhvern hátt, það er ekki nóg að geta bara skammað en ekkert hvatt!

Þetta verður að laga!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _