Ég hef nú alltaf verið að spila start new game og hef verið að spá hvað quick start game væri.
Er það eitthvað öðruvísi eða er þetta bara til að drífa eitthvað af stað.
Ekki hef ég fengið neinar upplýsingar um það frá vinum mínum sem spila þennann SNILLDAR leik.

Ég var líka að velta fyrir mér hvort þetta væri kannski bara einhverjar aðrar einkunnir yfir leikmenn eða þá bæði stjórnin með aðrar fyriáætlanir eða þá bara að þetta sé bara engin skemmtun.

Þá væri ég líka fegin að fá upplýsingar frá ykkur um hvað quick start geme væri og hvort þið hafið prófað það.
Eflaust er nefnilega einhver hér sem spilar það og er þá álit hans vel þegið.

Eitt er það samt að lokum: Ég heyrði samt einhverstaðar að ekki væri hægt að velja öll löndin heldur bar þessi helstu eins og: England, Ítalíu, Þýskaland, Spán og eitthvað svoleiðis en eins og áður sagði man ég ekki hjá hverjum ég heyrði það.

Öll ráð er vel þegin því í framtíðinni prófar maður kannski.