Mér finnst aðstoðarþjálfararnir oft með svo heimkuleg álit í Football Manager. Þeir dæma leikmenn oftar en ekki vitlaust, hvort sem það er ungur efnilegur eða einhver fastamaður hjá manni.

Vanden Borre er 25 ára hjá mér og er hægri bakvörðurinn minn og er að standa sig hreint útsagt frábærlega og er með mjög góðar tölur. Þegar ég fer í teem report þá gefur hann honum ekki nema 2 stjörnur sem mér finnst alltof lítið.

Ég er einnig með einn svakalega efnilegan enskan regen sem er 19 ára í u21 Englands og með mjög góðar tölur. Aðstoðar þjálfarinn segir um hann að hann eigi ekki eftir að geta þróast í góðan leikmann. Málið er að hann er nú þegar góður leikmaður!

Ekki get ég kvartað undan lélegum eða óreyndum aðstoðar þjálfara því Sammy Lee er mín hægri hönd í save-inu og er með svaðalegar manager tölur.

Það eru mörg dæmi um þetta en mér langaði bara að deila þessu með ykkur og fá ykkar álit á þessu. Sem sagt hvort þetta sé svipað hjá ykkur :P