Þannig er mál með vexti að ég og vinur minn ætluðum að spila Network leik, ég var að undirbúa það og svona, tók smá tíma að fá það til að virka, síðan þegar ég er búinn að klára uppsetninguna á því að þá þurfum við að sjálfsögðu sama patch, þá bendi ég honum á 7.0.2. patchinn sem ég nota. Ok, hann downloadar honum en síðan þegar hann er búinn að installa þá segir hann að það komi e-ð ,,A sharing violation occurred while acccessing C /program files/sports interactive /football manager 2007 /fm.exe"
Ég er ekki alveg að skilja þessa setningu 100% þannig að aðstoð væri vel þegin :P
