Vil bara segja að þessir gaurar eru hrikalega öflugir í sókninni saman skora allaveganna 2 mörk saman í leik. Ég veit ekki hvað það er en þeir bæta hvorn annan upp.. Þeir komu ekkert voða vel út 1 tímabilið en urðu bara legends eftir 2 tímabilið

Er í season 08/09 með United og rooney er með 24 leiki og 32 mörk, sem er geðveiki og svo Rossi með 19 leiki og 12 mörk. Einnig vil ég benda á Vidic og Pique þeir eru fínir.

En já hvernig lýst ykkur á þessa kappa og hvernig mynduð þið stilla upp man utd. liðinu og svona hverja vilduð þið sjá í Man utd. liðinu.

PS. Þó þið fýlið ekki Man Utd. þá megiði alveg comenta samt ;)

Bætt við 9. janúar 2007 - 16:54
Gleymdi líka einu. Þó að Man Utd eru suddalega ríkir í þessu seivi með 70 milljónir punda. Þá vilja þeir bara gefa mér 9 milljónir punda til að kaupa leikmenn.. Þeir eru alltaf svo nískir andskotar þarna :/