Hvernig er það, er alveg vitavonlaust að fá markmenn til þess að hækka í tölum hjá manni?

Það besta sem ég hef náð er að þeir standi í stað í flestu en hækki örlítið bara í handling.

Það sem er algengast er að nærri allar tölur verði rauðar, þó hef ég prófað allt mögulegt, eins og að hafa skills og tactics í Medium, Light og full (ásamt none), reynt að hafa sér markmannaþjálfara (x2 jafnvel) etc etc.

Er einhver með góða markmannataktík?
Summum ius summa inuria